Hjálmar R. Bárðarson fyrrverandi siglingamálastjóri var afkastamikill áhugaljósmyndari og gaf út fjölda bóka með myndum af landi og þjóð. Á sýningunni Hjálmar R. Bárðarson í svarthvítu getur að líta svarthvítar myndir úr safni hans, bæði landslagsmyndir og listrænar myndir.
Ljósmyndaferill Hjálmars (1918-2009) spannaði tæp áttatíu ár. Hann lifði þrjú skeið í ljósmyndatækni; svarthvítar myndir, litmyndir og stafrænar myndir. Í safni hans eru um 70 þúsund svarthvítar myndir frá tímabilinu 1932 til 1988 en nýjar eftirtökur hafa nú verið gerðar eftir úrvali þessara mynda og eru þær til sýnis á sýningunni.
Hér fyrir neðan má nálgast verkefni í tengslum við ljósmyndir Hjálmars. Verkefnin má prenta út og leysa á sýningunni sem stendur frá 29. október 2011 - 8. apríl 2012.
Verkefni fyrir efstu bekki grunnskóla
Verkefni fyrir miðstig/yngra stig grunnskóla
Lesa meiraÞann 29. september verður ný sýning um tóbaksnotkun og tóbaksvarnir opnuð í Horninu. Boðið verður upp á fræðslu í tengslum við sýninguna, þar sem lögð verður áhersla á tóbaksvarnir. Í tengslum við sýninguna mun Þjóðminjasafnið einnig, í samstarfi við Landlæknisembættið, Krabbameinsfélagið og Odda, efna til samkeppni meðal grunnskólanemenda um hönnun á nýju tóbaksvarnarplakati. Samkeppnin verður nánar auglýst síðar.
Hér má nálgast kennsluefni fyrir 5. - 8.bekk í tengslum við sýninguna Guðvelkomnir, góðir vinir! Útskorin íslensk horn.
Hér má nálgast verkefni fyrir skólahópa í tengslum við ljósmyndasýninguna Ljósmyndari Mývetningar - Mannlífsljósmyndir Bárðar Sigurðssonar frá upphafi 20. aldar.
Ljósmyndir Bárðar gefa góða innsýn í líf og störf Íslendinga við upphaf 20. aldar og er hægt að tengja þær flestum greinum skóla, til dæmis samfélagsfræði, sögu, félagsfræði, listasögu, myndmennt, lífsleikni og íslensku.
Á sýningunni eru einnig munir sem tengjast myndunum á einn eða annan hátt og dýpka þannig skilning á myndefninu.
Nánari upplýsingar og bókanir í fræðslu: í síma 530-2200 eða á kennsla@thjodminjasafn.is
Baðstofulíf - samanburður (kennaraeintak)
Baðstofumynd Bárðar (kennaraeintak)
Verkefni fyrir eldri skólahópa