Hjálmar R. Bárðarson í svarthvítu
Hjálmar R. Bárðarson fyrrverandi siglingamálastjóri var afkastamikill áhugaljósmyndari og gaf út fjölda bóka með myndum af landi og þjóð. Á sýningunni Hjálmar R. Bárðarson í svarthvítu getur að líta svarthvítar myndir úr safni hans, bæði landslagsmyndir og listrænar myndir.
Ljósmyndaferill Hjálmars (1918-2009) spannaði tæp áttatíu ár. Hann lifði þrjú skeið í ljósmyndatækni; svarthvítar myndir, litmyndir og stafrænar myndir. Í safni hans eru um 70 þúsund svarthvítar myndir frá tímabilinu 1932 til 1988 en nýjar eftirtökur hafa nú verið gerðar eftir úrvali þessara mynda og eru þær til sýnis á sýningunni.
Hér fyrir neðan má nálgast verkefni í tengslum við ljósmyndir Hjálmars. Verkefnin má prenta út og leysa á sýningunni sem stendur frá 29. október 2011 - 8. apríl 2012.
Verkefni fyrir efstu bekki grunnskóla
Verkefni fyrir miðstig/yngra stig grunnskóla

