Safnkassar

Tóvinnukassi, matarkassi, leikjakassi og fornaldarkassi

Þjóðminjasafnið lánar safnkassa til skóla sem innihalda eftirgerðir gamalla gripa og möppur með leiðbeiningum um notkun. Fjórir kassar eru í boði með ólíku þema: tóvinnukassi, matarkassi og leikjakassi. Innihald kassanna má kynna sér hér fyrir neðan.

Safnkassarnir eru lánaðir til grunnskóla á höfuðborgarsvæðinu í viku í senn en í tvær vikur til grunnskóla á landsbyggðinni, að meðtöldum sendingartíma. Skólarnir bera sjálfir ábyrgð á og kostnað við að ná í og skila safnkössum. Safnkassarnir eru geymdir í safnhúsinu Suðurgötu 7.

Til að óska eftir láni er best að senda tölvupóst á póstfangið kennsla@thjodminjasafn.is eða hringja í síma 5302200.

Tóvinnukassi

Í tóvinnukassanum er að finna alls kyns áhöld sem tengjast ullarvinnu áður fyrr. Þar fá nemendur tækifæri að prófa að kemba ull með ullarkömbum, kynnast notkun halasnælda og greina mismunandi tegund ullar. Einnig fylgir kassanum ítarleg upplýsingamappa um íslensku ullina, notkun og vinnuaðferðir.

Matarkassi

Matarkassinn inniheldur matarílát á borð við aska, þvörur og sleifar, trog og margt fleira. Einnig er þar að finna heimildir um matargerð fyrri tíma á Íslandi.

Leikjakassi

Hentar afar vel fyrir yngstu bekki grunnskólanna og leikskóla þar sem börn fá að kynnast leikföngum fyrri tíma og auðga ímyndunaraflið. Í leikfangakassanum er að finna leggi, kjúkur, völur, skeljar, tréleikföng og leikjahefti með gömlum leikjum sem gaman er að prófa.

Landnámskassi

Landnámskassinn inniheldur meðal annars tvo landnámsbúninga, eftirgerðir af munum sem fundist hafa í fornleifauppgrefti (hálsfesti, skæri, nælur), fræðsluefni um landnámsöld, hnefatafl, gömul Íslandskort með siglingaleiðum á landnámsöld og hnefatafl. Einnig er að finna í kassanum dúkkulísur sem sýna landnámsfjölskyldu og litamyndir til útprentunar. Nálgast má þessar myndir hér á vef Þjóðminjasafnsins.
Landnámsdúkkulísur og litamyndir


Leita á vefnum


Póstlisti Þjóðminjasafnsins


 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica