Skipulagðar heimsóknir
Landnámsmenn í heimsókn

Fyrirkomulag heimsókna

Boðið er upp á skipulagðar skólaleiðsagnir í Þjóðminjasafni Íslands fyrir alla skóla landsins. Skólaheimsóknir verður að panta fyrirfram hjá safnkennurum sem taka á móti hópunum og fara með hópinn í leiðsögn og fræðslu um safnið.

Kennarar eru beðnir um að taka þátt í heimsókninni og vera starfsmönnum innan handar. Tekið er á móti einum bekk hverju sinni og tekur heimsóknin um 60 mínútur og fer eftir umfjöllunarefni þess bekkjar sem við á. Skólahópar mæta við aðalinngang safnsins þar sem safnkennarar taka á móti þeim. Nemendur þurfa ekki að hafa neitt meðferðis fyrir heimsóknina og best er að skilja töskur eftir í skólanum. Kennarar eru hvattir til að undirbúa heimsóknina vel svo hún gagnist skólastarfinu sem best. Bent er á ítarefni sem fylgir hverri dagskrá og margmiðlunarefni sem hægt er að nálgast á safninu. Hvort tveggja væri hægt að nýta í verkefnavinnu eða umræðum í tengslum við safnaheimsóknina. Sjá dagskrá í veftré til vinstri.

Bókanir

Til að óska eftir heimsókn er best að kennarar sendi tölvupóst með góðum fyrirvara á póstfangið kennsla@thjodminjasafn.is. Eftirfarandi upplýsingar þurfa að fylgja: nafn skólans, nafn kennara og símanúmer, fjöldi nemenda í bekknum, óskir um dagsetningu og tíma, sérþarfir nemenda og önnur atriði sem kemur sér vel fyrir fræðslufulltrúann að vita um.

Bókanir í síma 530 2200 eða sendið tölvupóst á kennsla@thjodminjasafn.is




Leita á vefnum


Póstlisti Þjóðminjasafnsins


 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica