Dagskrá

Leikskóli: Vís er sá sem víða fer

Þjóðminjasafn - hvað er það?

Dagskráin er fyrir 4 ára börn og líklega eru mörg þeirra að heimsækja Þjóðminjasafnið í fyrsta skipti. Börnin fá tækifæri til að kynnast safninu stuttlega og er lögð áhersla á skemmtilega og fjölbreytta upplifun. Lesa meira
 

1. bekkur: Fyrrum átti ég falleg gull

Baðstofulíf

Nemendur kynnast safninu og safnkosti grunnsýningar. Sérstök áhersla er lögð á daglegt líf á heimilum, til dæmis matseld og leik. Nemendur fá líka að snerta eftirgerðir og setja sig í spor forfeðra við leik og störf. Lesa meira
 

3. bekkur: Tíminn og skórnir

Breytingar í aldanna rás

Hugsanlega hafa flestir nemendur heimsótt safnið áður og þekkja því nokkuð til starfseminnar. Í heimsókninni er áhersla lögð á að kenna nemendum á grunnsýningu safnsins svo þeir geti auðveldlega heimsótt safnið á eigin vegum í framtíðinni. Sagan er sögð í tímaröð á grunnsýningunni og gegnir tíminn miklu hlutverki í heimsókninni. Lesa meira
 

5. bekkur: Í spor landnámsmanna

Upphaf Íslandsbyggðar

Í heimsókninni er fjallað um landnámið og skoðaðir fornleifar sem eru einstakar fyrir Þjóðminjasafnið. Nemendur skoða og snerta eftirgerðir hluta og hlusta á frásögn landnámskonu (hljóðstöð í grunnsýningu). Allir nemendur klæðast landnámsbúningum sem merktir eru nöfnum úr Landnámu meðan á heimsókninni stendur. Lesa meira
 

Leita á vefnum


Póstlisti Þjóðminjasafnsins


 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica