Dagskrá
LIM 103: Listamenn fyrri alda
Listir og handverk í Þjóðminjasafni
Sýndir verða helstu listgripir í safninu frá elstu tíð til 20. aldar. Sýnt fram á áhrif kristnitöku og síðar siðbreytingar á listsköpun. Íslensk list og séreinkenni hennar eru skoðuð sérstaklega.
Viðfangsefni
Sýndir verða helstu listgripir í safninu frá elstu tíð til 20. aldar. Sýnt fram á áhrif kristnitöku og síðar siðbreytingar á listsköpun. Íslensk list og séreinkenni hennar verður skoðuð sérstaklega. Sýnd verður margmiðlunardagskrá um Sigurð Guðmundsson málara sem var frumkvöðull í ýmsum greinum lista og menningar. Þegar tilefni gefst til verða skoðaðar sérsýningar sem falla að viðfangsefninu.
Nokkur markmið með heimsókninni
Að nemendur...
- kynnist listgripum í Þjóðminjasafni
- skoði listgripi með tilliti til tímans sem þeir voru skapaðir í
- fái hugmynd um hvaðan áhrif berast og hve trúarbrögð skipa þar stóran sess
- skoði mismunandi hlutverk listgripanna fyrir samfélagið á mismunandi tímum sögunnar.
- kynnist íslenskri list fyrri alda
Í Aðalnámskrá fyrir aldursstigið segir meðal annars:
Að nemendur...
- Með þekkingu og skilningi á táknmáli lista er maðurinn fær um að meta og greina upplýsingar og áhrif sem hann verður fyrir daglega. Þessi þekking og skilningur er forsenda virkrar þátttöku í menningunni. Listir hjálpa nemandanum að skilja menningarlegan fjölbreytileika og að gera sér grein fyrir menningarlegu afstæði með því að kynna fyrir honum gildi, hefðir og hugmyndafræði eigin samfélags og annarra.
- geri sér grein fyrir því hvernig listir eru nátengdar félagslegum veruleika á hverjum stað á hverjum tíma
- tileinki sér þekkingu á því menningarlega samhengi sem list og/eða hönnun sprettur úr, á listrænum menningararfi og á helstu stefnum og straumum í listheiminum

