Í tengslum við sýninguna TÍZKA - kjólar og korselett hefur verið tekin saman spurningaskrá um fatnað og heimasaum. Einnig er spurt um kjólameistara, klæðskera o.fl. Tilgangurinn með þessari spurningaskrá er að safna upplýsingum um fatnað og saumaskap á heimilum fyrr og nú.
Í tengslum við samnefnda sýningu í Bogasal 28.01.2012 - 28.08.2012 kom út vegleg sýningarskrá. Í bókinni er fjöldi mynda af kjólunum á sýningunni auk fylgihluta. Jafnframt eru í bókinni myndir sem sýna tíðaranda þess tíma sem sýningin spannar, árin frá ca. 1940-1970.
Í tengslum við samnefnda sýningu í Myndasal 29.10.3011-8.4.2012 hefur verið gefin út bókin Hjálmar R. Bárðarson í svarthvítu, með úrvali mynda af sýningunni. Í bókinni er grein um starfsferil Hjálmars eftir Ingu Láru Baldvinsdóttur fagstjóra Ljósmyndasafns Íslands í Þjóðminjasafni og ritaskrá Hjálmars í tímaröð. Margrét Hallgrímsdóttir þjóðminjavörður ritar formála. Ritstjóri er Bryndís Sverrisdóttir.
Lesa meira