Sunnudaginn 6. maí kl. 14:00 verður boðið upp á barnaleiðsögn í Þjóðminjasafni Íslands. Þetta er síðasta barnaleiðsögn vetrarins og eru allir velkomnir!
Fimmtudaginn 26. apríl verða sýningarnar Nál og hnífur – útsaumsmyndir Guðrúnar Bergsdóttur og útskurður Gauta Ásgeirssonar og Átta heimar – verk nemenda úr Myndlistaskóla Reykjavíkur opnaðar í Þjóðminjasafn Íslands. Sýningarnar tvær eru hluti af hátíðinni List án landamæra. Að auki mun safnið standa fyrir málþingi um fötlun og söfn, í samstarfi við námsleið í safnafræði við Háskóla Íslands, í fyrirlestrasal Þjóðminjasafnsins, föstudaginn 27. apríl kl. 13-15:30.
Miðvikudaginn 25. apríl kl. 12 mun Guðjón Friðriksson sagnfræðingur halda fyrirlestur um reykvísk götunöfn úr Íslendingasögunum í hádegisfyrirlestri í Þjóðminjasafni Íslands. Aðgangur er ókeypis og allir velkomnir.