Hádegisfyrirlestur - ISLEX
ISLEX-orðabókin er viðamikið verk á netinu sem opnað var þann 16. nóvember sl. á Degi norrænnar tungu. ISLEX-orðabókin er fyrsta rafræna orðabókin sem tengir saman mörg norræn mál. Viðfangsmálið er íslenska en sænska, norskt bókmál, nýnorska og danska eru markmál. Hún hefur að geyma um 50.000 flettur og þýðingar á þeim. Orðabókin lýsir íslensku nútímamáli þar sem áhersla er lögð á að sýna fjölbreytileg orðasambönd, fasta orðanotkun og dæmi með þýðingum á markmálin.
Á vefsíðu orðabókarinnar er boðið upp á nokkra mismunandi leitarmöguleika. Þar er valið markmálið sem þýðingarnar birtast á. ISLEX hentar vel til að fá innsýn í samhengi íslensku við önnur Norðurlandamál. ISLEX er ætlað að þjóna þörfum ólíkra notendahópa. Sem íslensk-skandinavísk orðabók miðast hún annars vegar við þarfir sænskra, norskra og danskra notenda, m.a. vegna þýðinga úr íslensku og náms og kennslu í íslensku á Norðurlöndunum. Hins vegar nýtist hún íslenskum notendum sem vilja finna viðeigandi orðalag á tilteknu markmáli. ISLEX felur í sér mikilvægt framlag til þess að styrkja menningartengsl og efla málskilning á milli Norðurlandaþjóðanna.

