Fréttir
Hjálmar R. Bárðarson í svarthvítu

Hjálmar R. Bárðarson í svarthvítu

Í tengslum við samnefnda sýningu í Myndasal 29.10.3011-8.4.2012 hefur verið gefin út bókin Hjálmar R. Bárðarson í svarthvítu, með úrvali mynda af sýningunni. Í bókinni er grein um starfsferil Hjálmars eftir Ingu Láru Baldvinsdóttur fagstjóra Ljósmyndasafns Íslands í Þjóðminjasafni og ritaskrá Hjálmars í tímaröð. Margrét Hallgrímsdóttir þjóðminjavörður ritar formála. Ritstjóri er Bryndís Sverrisdóttir.

Ljósmyndaferill Hjálmars R. Bárðarsonar (1918-2009) spannaði tæp áttatíu ár allt frá unglingsárum til æviloka. Hjálmar átti sér mörg líf sem ljósmyndari. Hann lifði þrjú skeið í ljósmyndatækni, svarthvítar myndir, litmyndir og stafrænar myndir. Í safni hans eru um 70 þúsund svarthvítar myndir frá tímabilinu 1932 til 1988. Á sýningunni Hjálmar R. Bárðarson í svarthvítu og í samnefndri sýningarbók er birt sýnishorn þessara mynda.

Hjálmar R. Bárðarson arfleiddi Ljósmyndasafn Íslands í Þjóðminjasafni að filmusafni sínu, ýmsum gögnum og fjármunum. Með sýningunni og útgáfu bókarinnar vill Þjóðminjasafnið heiðra minningu hans og þakka langa og góða samleið.


Leita á vefnum


Póstlisti Þjóðminjasafnsins


 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica