Fundur í Vísindafélagi Íslendinga
Fundur í Vísindafélagi Íslendinga verður haldinn í samvinnu við Þjóðminjasafn Íslands í sal Þjóðminjasafnsins fimmtudaginn 23. Febrúar kl 12:00. Á fundinum mun Ármann Jakobsson Prófessor í íslenskum bókmenntum fyrri alda við Háskóla Íslands, halda erindi sem hann nefnir: Hverju reiddust goðin? Inngangur að tröllafræðum miðalda. Aðgangur er ókeypis og öllum heimill.
Í erindinu verður fjallað annars vegar um vægi þess yfirnáttúrulega í hugsun Íslendinga á miðöldum og orsakarskýringum frá þeim tíma, en hins vegar um hvernig fræðimenn samtímans hafa beitt flokkunarkerfi nokkurn veginn hliðstæðu því sem til varð í náttúruvísindum á 18. öld á verur sem ekki eru til, allt frá 19. öld og fram á okkar daga. Sérstaklega verður hugað að skilgreiningum á hinu yfirnáttúrlega andspænis reynslu einstaklinganna af því torræða og lítt skiljanlega. Vikið verður að þeim fjölmörgu og fjölbreyttu hugtökum sem notuð eru á þessum tíma og merkingu þeirra. Ýmsar flokkunar- og skilgreiningartilraunir á ýmsum tegundum yfirnáttúru má finna í íslenskum miðaldatextum en þó virðist eðli hins yfirnáttúrlega almennt þokukennt og fjölmörg ljón á vegi skilnings af því tagi sem vísindi nútímans sækjast eftir.

