Aðgengi
Viðurkenning Sjálfsbjargar lsf

Þjóðminjasafn Íslands er fyrir alla

Stöðugt er unnið að því að bæta aðgengi að sýningum Þjóðminjasafnsins. Safnið fékk viðurkenningu Sjálfsbjargar árið 2006 fyrir gott aðgengi fyrir fatlaða. Ekki verður þó staðar numið þar heldur er stöðugt unnið að endurbótum.

Yfirlit yfir aðstöðuna:

  • Aðalinngangur: Á suðurgafli, enginn þröskuldur, rennihurð sem opnast sjálfkrafa
  • Barnakerrur: Sex kerrur í anddyri og fatahengi í kjallara.
  • Bílastæði: Ekið er inn á bílastæði frá Suðurgötu. Vinsamlega athugið að stæði í hringnum fyrir framan innganginn eru aðeins fyrir rútur.
  • Bílastæði fyrir fatlaða: Þrjú, þar af tvö nálægt aðalinngangi og eitt við starfsmannainnganginn, innst á bílastæði Suðurgötumegin.
  • Fyrirlestrasalur: Gott aðgengi fyrir hjólastóla frá anddyri (rampur).
  • Fellistólar: Já, upplýsingar í móttökunni.
  • Hjólastólar: Þrír, upplýsingar í móttöku.
  • Hljóðleiðsögn: Boðið er upp á hljóðleiðsögn á íslensku, ensku, dönsku, þýsku, frönsku og pólsku. Boðið er upp á hljóðleiðsögn fyrir börn á íslensku og ensku. 
  • Hvíldarherbergi: Á 2. hæð, spyrjið gæslufólkið.
  • Leiðsögn: Barnaleiðsögn kl. 14 fyrsta sunnudag í mánuði á veturna. Auk þess er boðið upp á sérfræðileiðsögn um sérsýningar. Hægt er að panta leiðsögn fyrir hópa á öðrum tungumálum og á táknmáli í síma 530 2200.
  • Lyftur: Niður í kjallara, þar sem fatahengi og salerni eru staðsett, og eins er lyfta á milli hæða í sýningarsölunum, bæði norðan og sunnan megin.
  • Margmiðlun: Í sýningunum er notuð margmiðlunartækni, meðal annars er símasamband við íbúa fortíðar og kvikmyndir á skjáum.
  • Nestisaðstaða: Nei.
  • Reykingar: Safnhúsið er reyklaust svæði, en reykingar eru leyfðar á útisvæði Kaffitárs og þar eru stubbahólkar á vegg.
  • Safnbúð: Á 1. hæð, gegnt Kaffitári.
  • Salerni: Þrjú salerni eru í fatahengi undir anddyri, þar af eitt fyrir fatlaða, tvö salerni með dyraopnara á 2. hæð, þar af annað fyrir fatlaða.
  • Sími: Hægt er að komast í síma í móttöku ef þörf krefur.
  • Snertisafn: Safngripir sem má snerta, aðeins fyrir hópa. Vinsamlega bókið tíma í síma 530 2200 eða á kennsla@thjodminjasafn.is.
  • Upplýsingar á blindraletri: Yfirlitsmynd yfir safnið og staði með hljóðleiðsögn. Upplýsingar í móttöku.
  • Veitingasala: Kaffitár er á jarðhæð safnhússins.



Leita á vefnum


Póstlisti Þjóðminjasafnsins


 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica