Hátíðir í Þjóðminjasafni Íslands
Á hverju ári er fjöldi fastra viðburða í safninu.
Þjóðminjasafnið efnir árlega til fjögurra stórra viðburða eða hátíða í tengslum við vissa daga eða ákveðnar menningarhátíðir í Reykjavík. Þetta eru safnanótt sem haldin er í tengslum við vetrarhátíð í Reykjavík, sumardagurinn fyrsti, menningarnótt og jóladagskráin. Hver um sig skipar mikilvægan sess í ársdagskrá safnsins.
Á þessum dögum er blásið til menningar-, fræðslu- og listaveislu í Þjóðminjasafninu og sýningarsalirnir fyllast af lífi. Meðal þess sem verið hefur á dagskrá má nefna tónlist, söng, upplestur, dans, föndur, listasmiðjur, leiki, leiklist og leiðsögn, ef ekki allt í senn, og oftast með þátttöku gesta.
Að auki eru reglulegir greiningadagar í safninu, þar sem gestum býðst að koma með gamla muni í greiningu til sérfræðinga safnsins. Þessir dagar eru kallaðir "Áttu forngrip í fórum þínum?" og eru fyrsta sunnudag í mars og fyrsta sunnudag í nóvember ár hvert.

