Dansi dansi dúkkan mín
Sumardagurinn fyrsti í Þjóðminjasafninu 2008
Dagskrá Sumardagsins fyrsta í Þjóðminjasafninu er að þessu sinni helguð börnum og brúðum. Fyrst ber að nefna Gangandi brúðuleikhús Konstantin Shcherbak og Maríu Bjarkar Steinarsdóttur sem verður með leiksýningar klukkan 14 og 16. Aðalbrúða sýningarinnar er hin rússneska karnivalsbrúða Petrushka.
Í tilefni dagsins verður líka opnuð sýning á gömlum brúðum úr eigu safnsins á Torginu, sungið verður með börnunum, farið í hópleiki og boðið upp á listasmiðju.
Gangandi brúðuleikhús byggir á Petrushka brúðuleikhúsi sem er hluti af rússneskri karnivalsmenningu. Konstantin og María endurskapa hefðbundið rússneskt brúðuleikhús með brúðunni Petrushka og flutningi á alþýðutónlist.
Börn og fullorðnir geta svo líka fetað saman Fræðsluspor fjölskyldunnar í Þjóðminjasafninu, skemmtilegar leikjaþrautir sem má leysa um leið og grunnsýningin er skoðuð. Fræðslusporin má nálgast í afgreiðslunni ásamt hinum sívinsælu ratleikjum: Hvar eru dýrin? Hvar eru konurnar? Hvar eru beinin og tennurnar? og Hvar eru kynjaverurnar?
Sniðugar sumargjafir fást í Safnbúðinni og ljúffengar veitingar í veitingastofu safnsins, Kaffitári.
Það er gaman vera barn í Þjóðminjasafninu á Sumardaginn fyrsta. Dagskráin hefst klukkan 14 en opið hús er allan daginn 11-17 og ókeypis inn.
Konstantin Shcherbak fæddist í Moskvu í Rússlandi árið 1978. Hann hefur alla tíð haft áhuga á tónlist en frá tvítugsaldri heillaðist hann af rússneskri alþýðutónlist og hefðbundinni rússneskri menningu. Hann hefur sótt fjölda námskeiða í alþýðutónlist í Tchaikovski tónlistarháskólanum í Moskvu og fór með tónlistarfræðingum í rannsóknaferðir til að safna þjóðlögum. Í þrjú ár var hann meðlimur í kór Tchaikovski tónlistarháskólans sem flutti hefðbundna alþýðutónlist. Á Íslandi hefur Konstantin komið víða fram og flutt rússnesk alþýðusönglög og hljóðfæratónlist á rússnesk hljóðfæri.
María Björk Steinarsdóttir fæddist í Reykjavík árið 1973. Hún fékk áhuga á brúðuleiklist þegar hún kynntist Konstantin og hefur lært að flytja einstaka rödd Petrushka. Saman hafa þau verið með Gangandi brúðuleikhús síðan haustið 2005. Þau byrjuðu á stuttum brúðusýningum með tilbúnum brúðum, sem hluta af stærri tónlistardagskrá, en þær þróuðust svo yfir í sjálfstæðar brúðusýningar með brúðum sem þau bjuggu sjálf til.

