Safnbúð

Vandað vöruúrval í safnbúð Þjóðminjasafnsins

Safnbúð Þjóðminjasafnsins

Safnbúð Þjóðminjasafnsins býður upp á vandað og einstætt vöruval. Hún er óaðskiljanlegur hluti Þjóðminjasafnsins og gegnir mikilvægu hlutverki við miðlun þess á sögu og minjum. Safnbúðin stendur fyrir sérhæfðri minjagripaframleiðslu þar sem hugmyndir eru sóttar í safnkost og sérsýningar safnsins. Í safnbúðinni fást vandaðir munir fyrir fullorðna, leikföng og annað sem gleður börnin, vandað úrval sérfræðirita Þjóðminjasafnsins og bóka fyrir börn og fullorðna og margt fleira.

Minjagripir ÞjóðminjasafnsinsSafnbúð Þjóðminjasafnsins lét framleiða víntappa í tengslum við sýninguna Í eina sæng

Í Safnbúðinni fást minjagripir, leikföng og gjafavara þar sem fer saman ný og fersk hönnun og fræðilegt gildi. Samstarf Þjóðminjasafnsins við hönnuði hefur getið af sér marga einstaka muni sem eiga það sameiginlegt að færa gripi, ljósmyndir, myndlist og handverk safnsins í nútímalegan og fallegan búning. Þar öðlast 1200 ára menningarsaga Íslands nýja vídd sem aðgengileg er bæði ungum og öldnum gestum safnsins.

Krakkar sýna boli sem eru til sölu í SafnbúðinniÍ Safnbúð fæst ýmislegt sem börn hafa gaman af, svo sem eins og  minnisspil og púsl með myndum af gripum safnsins sem eru tilvaldar gjafir handa börnum. Einnig fást þar eftirgerðir af búningum frá landnámsöld ásamt  vopnum og verjum.

Síðast en ekki síst má nefna fjölbreytt úrval af skarti, en safnbúðin býður upp á endurgerðir af hálsfestum, hringum, nælum o.fl. sem geymdar eru í safninu. Þar má finna m.a. finna galdrastafi, töfrarúnir og Þórshamar ásamt fleiri eftirgerðum af vinsælum gripum á safninu. Einn vinsælasti gripurinn er eftirgerð af líkneski frá um 1000 af hinum heiðna guði Þór.

Samstarf við unga hönnuði og listamenn

Safnbúðin hefur einnig verið í gjöfulu samstarfi við Listaháskóla Íslands en á hverju ári er skólinn með valnámskeið þar sem nemendur vinna að hönnun út frá menningararfinum. Nemendur fá fræðslu og aðstöðu á safninu hanna að lokum vöru eða verkefni sem stundum hefur þótt henta til sölu í Safnbúðinni. Meðal þess sem er fáanlegt er Klakinn, klakamót með lögun Íslands, Kolur, sem er útfærsla á aldagamla lýsislampanum.

Bækur, hljómdiskar og DVD diskar

Stelpur lesa þjóðlegar barnabækur í SafnbúðinniÞjóðminjasafnið stendur að viðamikilli útgáfu-starfsemi og hefur gefið út bækur með öllum stærri sérsýningum og auk þess eru árlega gefnar út allnokkrar rannsóknarskýrslur.  Auk þess fást í Safnbúðinni margar bækur sem  ekki eru algengar á hillum venjulegra bókabúða, t.d. þjóðsögur og vísnabækur fyrir börn og gamlar fræðibækur um handverk og þjóðhætti. Einnig má nefna sérstaklega Hlutaveltu tímans, sem er vönduð og sérlega eiguleg sýningarbók um grunnsýningu Þjóðminjasafnsins. Hljómdiskar eru einnig fáanlegir og eru þar lögð áhersla á þjóðlagatengda tónlist. Einnig eru í boði nokkrir titlar af DVD myndum sem fela í sér fræðslu um menningu og þjóð.


Leita á vefnum


Póstlisti Þjóðminjasafnsins

Skráning á póstlista.

Ath. Nauðsynlegt er að fylla út þá reiti sem merktir eru með *.




Þetta vefsvæði byggir á Eplica