Veitingastofa
Kaffitár í Þjóðminjasafninu

Veitingastofan Kaffitár í Þjóðminjasafninu

Óviðjafnanlegt kaffi

Veitingastofan Kaffitár er menningarlegur áningarstaður í miðborginni. Eftir heimsókn í Þjóðminjasafnið er tilvalið að setjast niður í veitingastofunni. Þar eru ávallt kræsingar í boði og kaffið er óviðjafnanlegt. Margir koma líka við í Kaffitári þótt safnið sé ekki skoðað í sömu ferð.

Kaffitár er staðsett við Safnbúðina og Torgið á 1. hæð Þjóðminjasafnsins.

Veitingastofan Kaffitár - kaffið er óviðjafnanlegtRekstur veitingastofu Þjóðminjasafnsins er í höndum Kaffitárs sem hefur verið til frá árinu 1990. Síðan þá hefur fyrirtækið markað nokkur spor í sögu kaffiframleiðslu á Íslandi og alveg frá upphafi hafa ástríða og fagmennska einkennt framgöngu þess. Neytendur kunna að meta hvorutveggja.

Kaffið sjálft kemur þó ekki eitt þar við sögu, heldur einnig starfsfólkið. Kaffitár hefur í öll þessi ár lagt sig í líma við að þjálfa og fræða starfsfólk sitt þannig að hver og einn sé svo vel verki farinn að öruggt sé að bestu eiginleikar kaffisins komist til skila. Kaffibarþjónarnir eru líka fyrir löngu orðnir þjóðkunnir fyrir færni sína, og hafa jafnt og þétt lagt „kaffiheiminn“ á borð fyrir neytandann.




Leita á vefnum


Póstlisti Þjóðminjasafnsins


 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica