Dæmi um textílforvörslu
Hökull sem Jón Arason biskup lét gera og gaf kirkjunni að Hólum í Hjaltadal.
Hökull frá Hólum úr silkiflaueli
Hökull sem Jón Arason biskup lét gera og gaf kirkjunni að Hólum í Hjaltadal. Hann er sennilega norður-þýskur og frá byrjum 16. aldar. Krossinn á bakinu er allur útsaumaður af hinni mestu list, með gull- og silkiútsaumi. Á hann eru saumaðar sjö myndir sem sýna atburði úr sögu Jesú Krists og Maríu. Árið 1856 var hökullinn sendur til varðveislu til Kaupmannahafnar og kom hann til Þjóðminjasafns Íslands 1930.
Ástand fyrir viðgerð
Hökulinn er heill þ.e.a.s. heldur vel lögun sinni, en flauel er mjög slitið sérstaklega í kringum hálsmál, einnig neðst á bakstykki. Myndir í krossi eru nokkuð slitnar og mikið af þráðum sem liggja lausir (mynd 2).
Bönd sín hvoru megin við krossinn eru mjög slitin og illa út lítandi (myndir 3-5).
![]() |
![]() |
![]() |
|---|
|
|
Meðferð
Á nokkrum stöðum á höklinum voru gamlar viðgerðir sem fóru illa með efnið (mynd 6), drógu það saman og misteygðu. Þær voru allar raktar upp.
Byrjað var á að gera við krossinn, festa niður lausa þræði leggja efni undir þar sem þurfti og sauma það niður. Efnið í höklinum (flauelið) er mjög slitið, því þarf að leggja stuðningsefni undir það og síðan sauma eða loka öllum rifum.
Bönd sem lögð voru umhverfis krossinn voru mjög slitin, þar var crepelin, sem er mjög þunnt silki, lagt yfir böndin og saumað niður. Ekki var talið óhætt að þvo eða hreinsa hökulinn, eðlilega er hann óhreinn en engir áberandi blettir sjáanlegir.
Silki var notað á allan saumaskap (Mynd 7).




Mynd 6: Dæmi um gamla viðgerð sem var fjarlægð.