Forvarsla viðarhöggmynda eftir Ásmund Sveinsson
Í kjölfar bruna í geymsluhúsnæði Listasafns Reykjavíkur í ágúst 2002 tóku forverðir Þjóðminjasafnsins að sér viðgerðir á viðarhöggmyndum eftir Ásmund Sveinsson úr eigu Ásmundarsafns sem heyrir undir Listasafn Reykjavíkur
Í kjölfar bruna í geymsluhúsnæði Listasafns Reykjavíkur í ágúst 2002 tóku forverðir Þjóðminjasafnsins að sér viðgerðir á viðarhöggmyndum eftir Ásmund Sveinsson úr eigu Ásmundarsafns sem heyrir undir Listasafn Reykjavíkur.
Höggmyndirnar höfðu orðið fyrir skemmdum af völdum vatns og reyks. Fyrsta stig meðferðarinnar fólst í að þurrka verkin. Til að koma í veg fyrir frekari skemmdir af völdum vatns voru verkin látin þorna hægt. Til þess var smíðað tjald til að stjórna þurrkunarferlinu en það stóð yfir í tíu vikur (sjá mynd 1).
Því næst var yfirborðið hreinsað af sóti og öðrum óhreinindum (sjá myndir 2 og 3).
Lokastig meðferðarinnar er að koma höggmyndunum í ?sýningarhæft ástand? sem felst m.a. í að laga skemmdir á yfirborði og líma saman hluta sem voru lausir (sjá myndir 4, 5 og 6).
|
|
|
|
|
|---|---|---|---|




