Gagnasöfn og skráning
Gögn og skráningarstarf í Þjóðminjasafninu
Í Þjóðminjasafni Íslands er rekið sérhæft bóka- og heimildasafn með áherslu á efni sem tengjast rannsóknasviðum stofnunarinnar. Unnið er að skráningu í Sarp, rafrænan gagnagrunn Þjóðminjasafnsins og jafnframt að skráningu frumheilda í geymslum safnsins.

