Sérhæft bóka- og heimildasafn
Í Þjóðminjasafninu er rekið sérhæft bóka- og heimildasafn sem leggur áherslu á varðveislu og miðlun efnis sem tengist rannsóknarsviðum stofnunarinnar. Helstu efnissvið eru norræn menningarsaga, fornleifafræði, þjóðháttafræði, textílfræði, safnafræði, forvarsla, byggingarlist og listiðnaður.
Safnið er til húsa í Setbergi, Suðurgötu 43 (gegnt Þjóðminjasafninu), 101 Reykjavík.
Það er að jafnaði opið alla virka daga frá kl. 13-16 en lokað í einn mánuð yfir sumartímann.
Bókakostur safnsins er um tuttugu þúsund bindi þar af um 300 fagtímarit. Auk þess á safnið stórt smáprentasafn, skýrslur, handbækur og geisladiska. Þetta er stærsta sérfræðisafn landsins á sviði forvörslu, safnafræði og fornleifafræði.
Safnið hefur fulla aðild að GEGNI, og er stærstur hluti þess skráður þar.
Heimildasafnið samanstendur af margvíslegum gögnum sem teljast til safnkosts Þjóðminjasafnsins eða eru heimildir um gripi, minjar og rannsóknir sem safnið varðveitir eða hefur staðið að og snertir alla munaflokka Þjóðminjasafnsins.
Á Bóka- og heimildasafninu er einnig hægt að leita upplýsinga í Sarpi, rafrænum skráningar- og gagnagrunni Þjóðminjasafnsins.
Bóka- og heimildasafnið er meðlimur í Arlis/Norden - samtökum listbókasafna á Norðurlöndum.
Safnið er öllum opið og veitir upplýsingaþjónustu, annast afgreiðslu heimilda og veitir aðra almenna þjónustu. Bækur og gögn eru einungis lánuð á lesstofu, en útlán bóka eru að jafnaði takmörkuð við starfsfólk stofnunarinnar.
Prýðileg lesaðstaða er á safninu.
Bókavörður safnsins er Gróa Finnsdóttir, bókasafns- og upplýsingafræðingur.
Beinn sími: 530 2247
Tölvufang: groa@thjodminjasafn.is

