Frumskráning heimilda- og gagnasafna í Þjóðminjasafni Íslands
Frá árinu 2006 hefur staðið yfir umfangsmikil frumskráning heimilda- og gagnasafna í Þjóðminjasafni Íslands. Einkum er um að ræða gögn tengd Þjóðháttasafni, Húsasafni og Fornleifum. Unnið er að röðun og frágangi í geymslur og samhliða fært í geymsluskrá.
Áhersla er lögð á að öll röðun, frágangur og skráning séu eins nákvæm og kostur er, í samræmi við nútímalegar kröfur. Fylgt er upprunareglu, heimilda- og gagnasöfn höfð aðskilin og upphaflegri röð gagna haldið. Öll frávik frá upprunareglunni eru skráð en með því móti má ætíð endurskapa hið upprunalega safn ef á þarf að halda.
Með geymsluskránum og öðrum hjálpartækjum sem verða til við skráninguna ættu allir að geta nýtt sér og notað þessi frumgögn. Markmiðið er þetta verði ýtarlega skráð sjálfstæð söfn.
Heimilda- og gagnasöfnin eru hluti af Bóka- og heimildasafni Þjóðminjasafnsins og má nálgast nýleg yfirlit yfir skjalaflokka þar.
Frumskráningin hefur að nokkru leyti farið fram í samstarfi við Þjóðskjalasafn Íslands.

