Húsin í stafrófsröð

Arngrímsstofa í Svarfaðardal

Arngrímsstofa í Svarfaðardal

Á Tjörn í Svarfaðardal er stórbýli og kirkjustaður. Þar var prestssetur fram til ársins 1917. Í brekku beint upp af Tjörn er kotbýlið Gullbringa, sem byggðist á 18. öld og bjó þar lengstaf sárafátækt fólk. Þar stendur enn framhús, sem byggt var framan við gamla bæinn, og þar bjó fjöllistamaðurinn Arngrímur Gíslason (1829-87) síðustu ár ævi sinnar ásamt seinni konu sinni og börnum. Frá Gullbringu er frábært útsýni en húsakostur var þar aldrei gulli búinn.

Lesa meira
 
Burstafell í Vopnafirði

Bustarfell í Vopnafirði

Á Bustarfelli er stór og glæsilegur torfbær, nokkurs konar millistig norðlenskrar og sunnlenskrar bæjargerðar, og hefur bærinn verið í vörslu Þjóðminjasafnsins frá 1943.

Lesa meira
 
Bæjardyrahús á Reynistað

Bæjardyr á Reynistað

Auk hinna heillegu torfbæja og torfkirkna varðveitir húsasafn Þjóðminjasafnsins merka húshluta og aðrar byggingaleifar frá fyrri öldum. Á Reynistað í Skagafirði er bæjardyrahús sem er það eina sem varðveist hefur af bæ þeim sem Þóra Björnsdóttir lét reisa eftir mikinn bruna sem þar varð árið 1758. Þóra var ekkja Halldórs Brynjólfssonar Hólabiskups og hélt hún Reynistaðarklaustursumboð að manni sínum látnum 1753 og til dauðadags 1767.

Lesa meira
 
Bænhúsið á Núpsstað

Bænhús á Núpsstað

Núpsstaður er austasti bær í Fljótshverfi, skammt vestan við Lómagnúp. Á Núpsstað var kirkja, sem í máldaga frá 1340 er kennd við heilagan Nikulás. Kirkjan virðist hafa verið vel búin fram eftir öldum, en halla tók undan fæti á seinni hluta 16. aldar. Upp úr 1650 var reyndar byggð ný kirkja á staðnum, og er talið að bænhúsið sé að stofni til úr þeirri kirkju.

Lesa meira
 

Leita á vefnum


Póstlisti Þjóðminjasafnsins


 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica