Húsin í stafrófsröð
Sómastaðir við Reyðarfjörð

Sómastaðir við Reyðarfjörð

Íslenski torfbærinn hefur alla tíð verið lagaður að efnum og aðstæðum á hverjum tíma. Á síðustu skeiðum hans voru stundum byggð inn í hann timburhús, svokölluð framhús, og jafnvel steinhús. Það á við um Sómastaði í Reyðarfirði. Húsið byggði Hans J. Beck (1838-1920) við torfbæ sinn árið 1875 en hann er nú alveg horfinn sjónum. Sérstaða hússins er sú að útveggir þess eru úr grágrýti sem bundið er saman með smiðjumó, en svo kallast ein tegund jökulleirs.

Steinhúsið á Sómastöðum er hlaðið úr lítt tilhöggnu grjóti úr nágrenninu, byggt árið 1875 og múrað saman með jökulleir, svokölluðum smiðjumó. Útvegsbóndinn og hreppstjórinn Hans Jakob Beck (1838-1920) lét reisa húsið sunnan við torfbæ sem þá stóð á jörðinni. Hugmyndina að byggingartækninni hefur hann hugsanlega fengið á ferðum sínum til Skotlands, þar sem hús af svipuðu tagi eru algeng. Tvílyft timburhús stóð um tíma við vesturgafl steinhússins og var innangengt á milli á báðum hæðum. Eftir að nýtt íbúðarhús var byggt á jörðinni um 1950 var timburhúsið tekið niður en inngangsskúr var byggður í staðinn. Hann skemmdist er bíl var ekið á hann. Hans Jakob Beck var tvíkvæntur og eignaðist 23 börn.

Sómastaðir hafa verið hluti af húsasafni Þjóðminjasafns Íslands frá 1988. Safnið stóð fyrir gagngerri viðgerð á húsinu á árunum 2008-2010, með tilstyrk Alcoa Foundation. Þá var múrað í hleðsluna líkt og fyrri eigendur höfðu gert. Í viðgerðinni kom í ljós vel varðveitt stofa með vandlega múrhúðuðum veggjum ásamt mikilvægum ummerkjum um innri tilhögun fyrri tíma.

Í húsinu er sýning unnin af Minjasafni Austurlands og Safnastofnun Fjarðarbyggðar, umsjónaraðilum hússins.


Leita á vefnum


Póstlisti Þjóðminjasafnsins


 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica