Húsin, kort

Tungufellskirkja

Tungufellskirkja

Í Tungufelli í Hrunamannahreppi er timburkirkja af eldri gerð turnlausra kirkna sem einkennast af því að veggir eru lágir og gluggar nema við þakbrún. Hún var reist árið 1856 af Sigfúsi Guðmundssyni forsmið sem einnig smíðaði Hrunakirkju og gömlu sóknarkirkjuna í Skálholti.

Tungufellskirkja var upphaflega timburklædd og tjörguð, bæði á veggjum og þaki en árið 1891 var hún bárujárnsklædd að hluta til og síðar að fullu árið 1915 er viðamiklar endurbætur fóru fram á kirkjunni. Þá fyrst var hún máluð jafnt utan sem innan og hálfþil milli kórs og kirkju sem verið hafði í kirkjunni frá upphafi var fjarlægt. Einnig var gangurinn inn kirkjuna þá breikkaður.

Að innanverðu er spjaldaþil á veggjum og spjaldahvelfing yfir kór, ein sú elsta í íslenskri timburkirkju. Altari, prédikunarstóll og umbúnaður altaristöflunnar er eftir Ófeig Jónsson frá Heiðabæ í Þingvallasveit og voru þeir gripir í torfkirkju sem áður stóð í Tungufelli og Ófeigur smíðaði. Klukkur kirkjunnar eru með rómönsku lagi og eru með allra elstu kirkjuklukkum landsins.

Kirkjan hefur verið í eigu og umsjá Þjóðminjasafns Íslands frá árinu 1987. Árið 1991 hófust viðgerðir á vegum safnsins en framkvæmdir hafa legið niðri um nokkurt skeið. Í Þjóðminjasafni er varðveittur mikill kjörgripur úr kirkjunni, smeltur kross frá 13. öld.

Tungufell, innan


Leita á vefnum


Póstlisti Þjóðminjasafnsins


 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica