Húsin, kort

Burstafell í Vopnafirði

Bustarfell í Vopnafirði

Á Bustarfelli er stór og glæsilegur torfbær, nokkurs konar millistig norðlenskrar og sunnlenskrar bæjargerðar, og hefur bærinn verið í vörslu Þjóðminjasafnsins frá 1943.

Bustarfell er fornt höfuðból og ein stærsta jörð í Vopnafirði. Jörðin hefur verið í sjálfsábúð sömu ættar frá 1532. Torfbærinn sem nú stendur er að stofni til mjög gamall, jafnvel að hluta til frá því hann var endurbyggður eftir mikinn bruna 1770, en um aldur einstakra bæjarhúsa er erfitt að fullyrða með nokkurri vissu. Ýmsar breytingar hafa verið gerðar á húsaskipan á liðnum öldum. Að stórum hluta er bærinn þó eftir Einar Einarsson staðarbónda og Árna Jónsson snikkara frá Hólum í Vopnafirði frá seinni helmingi 19. aldar. Búið var í bænum fram til 1966 og ber hann þess nokkur merki. Vindrafstöð var sett upp 1942 og rafmagn til ljósa leitt í bæinn. Ári síðar var vatnsleiðslu komið í bæinn og 1944 var miðstöðvarhitun komið þar fyrir.

Minjasafnið á Bustarfelli er til húsa í bænum og eru munir úr búi Methúsalems Methúsalemssonar bónda á Bustarfelli (1889-1969) uppistaða safnsins. Hann lagði mikla rækt við að halda til haga gömlum munum úr bænum og í eigu Bustarfellsættarinnar. Minjasafnið var gert að sjálfseignarstofnun 1982 og munirnir þá afhentir Vopnfirðingum að gjöf.

Bustarfell, bakhlid

Bustarfell, bakhlið

Bustarfell, hlóðaeldhús

Bustarfell, hlóðaeldhús

Bustarfell, stofa

Bustarfell, stofa


Leita á vefnum


Póstlisti Þjóðminjasafnsins


 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica