Húsin, kort
Sauðanes á Langanesi
Gamla prestssetrið á Sauðanesi hefur verið í vörslu Þjóðminjasafns Íslands frá 1989. Það var þá mjög illa á sig komið, og var unnið að viðgerðum á því í liðlega áratug. Samningur var undirritaður árið 2002 við heimamenn um að nýta húsið í þágu menningartengdrar ferðaþjónustu og var húsið formlega opnað í sumarið 2003. Sauðaneshúsið er opið gestum í júní, júlí og ágúst frá 11:00 – 17:00.
Aðganseyrir er 500 kr., frítt fyrir börn á grunnskólaaldri.
Sr. Vigfús Sigurðsson (1811-1889) kom til Sauðaness 1869 og hafði áður þjónað á Svalbarði í Þistilfirði. Hann lét reisa fyrir sig íbúðarhús úr tilhöggnum steini á árunum 1879-81, eitt örfárra steinhlaðinna húsa á landinu, og önnuðust verkið þeir bræður Björgólfur snikkari og Sveinn múrsmiður Brynjólfssynir, sem þá voru búsettir á Sauðanesi. Gríðarstór tekkbolur, sem rak á Langanesfjörur, var notaður í útidyraumbúnað og hurðir. Eftir að sr. Vigfús lést tók sr. Arnljótur Ólafsson (1823-1904) við Sauðanesi og gegndi brauðinu til dauðadags. Hann var landskunnur fyrir stjórnmálaafskipti og ritstörf. Síðast var búið í gamla íbúðarhúsinu 1955 og var þá tekið í notkun nýtt prestssetur, skammt frá því gamla.
Sauðanes var áður í miðju byggðar á Langanesi, en fólksflutningar hafa verið miklir á síðustu öld. Sauðanes hefur verið annálað og eftirsótt prestssetur frá alda öðli með miklum landkostum, m.a. æðarvarpi, reka, silungs- og selveiði.

