Húsin, kort

Sæluhús við Jökulsá á Fjöllum

Sæluhús við Jökulsá á Fjöllum

Sæluhúsið var byggt skömmu eftir 1880 úr tilhöggnum steini og límt saman með kalki. Fjölmargir menn úr nágrenninu tóku þátt í byggingu hússins, ýmist með vinnu við bygginguna sjálfa eða með því að flytja aðföng. Landssjóður veitti fé til smíði hússins og var því valinn staður á vesturbakka árinnar.

Jökulsá á Fjöllum var mikill farartálmi fyrr á öldum. Áin var hvergi talin reið og voru lögferjur á stöðum þar sem umferð var mest. Ferjustaðurinn var skammt frá sæluhúsinu. Áin var fyrst brúuð hér árið 1948.

Húsið er 4,9 x 6,1 m að grunnfleti, hálfniðurgrafinn kjallari, jarðhæð og lágt ris. Í kjallaranum var hesthús, en á hæðinni eru tvö herbergi. Í innra herberginu var ofn og rúmbálkur. Inngangsskúr, bíslag, var við kjallaradyr, hann var síðan rifinn. Löngum var talað um að reimt væri í húsinu og var oft sem húsið væri barið allt utan þó ekki væri nokkurn mann að sjá. Einnig varð vart við ókennileg dýr í nágrenni þess.

Húsið var áður í umsjá Vegagerðar ríkisins en hefur verið í húsasafni Þjóðminjasafns frá 1988.


Leita á vefnum


Póstlisti Þjóðminjasafnsins


 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica