Húsin, kort

Víðimýrarkirkja

Víðimýrarkirkja

Víðimýrarkirkja er ein af örfáum varðveittum torfkirkjum landsins. Í upphafi 20. aldar var tvísýnt um afdrif hennar, en síðar áttuðu menn sig á því að hér var um ómetanleg menningarverðmæti að ræða. Matthías Þórðarson þjóðminjavörður hafði forgöngu um varðveislu kirkjunnar, sem ríkissjóður keypti síðan og fól í umsjá Þjóðminjasafns Íslands. Á umliðnum áratugum hefur Þjóðminjasafnið staðið fyrir viðgerðum á kirkjunni, þeim stærstu árin 1976 og 1997-98.

Kirkjan var reist árið 1834 af Jóni Samsonarsyni smið og alþingismanni. Hún er með torfveggjum til hliðanna og torfþekju en timburstöfnum í bak og fyrir. Grind kirkjunnar, sem er af bindingsverki, er að innanverðu klædd ómáluðu spjaldaþili. Kór er aðskilinn frá framkirkju með skrautlegu, máluðu kórþili og eru útskornar dróttir yfir dyrunum inn í kór. Framan við kórdyr norðan megin er hefðarstúka með útskornum og máluðum pílárum og skreyti í klassískum stíl. Sunnanvert í kirkjunni er hefðarstúka en þó minna prýdd. Við bekkjarenda í framkirkju eru útskornar bríkur.

Víðimýrarkirkja er opin gestum alla daga frá 9-18 yfir sumartímann (1. júní til 31. ágúst) en utan sumartímans er hún opin í samráði við staðarhaldarann á Víðimýri, Einar Örn Einarsson (s: 453-5095 og 8495674). Sigríður er með síma 8992053. Aðgangseyrir fyrir fullorðna er 400 kr en ókeypis er fyrir börn yngri en 18 ára.


Leita á vefnum


Póstlisti Þjóðminjasafnsins


 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica