Húsin, kort

Sjávarborgarkirkja í Skagafirði

Sjávarborgarkirkja í Skagafirði

Sjávarborgarkirkja er timburkirkja reist árið 1853, en fram að því munu flestar eða allar kirkjur á staðnum hafa verið torfkirkjur. Kirkjan er af elstu formgerð turnlausra íslenskra timburkirkna en það sem einkennir hana er að efri brún glugga er alveg uppi við þakskegg.

Yfirsmiður var Guðjón Jónsson snikkari á Akureyri, sem þekktur var fyrir listfengi. Húsgrindin er úr bindingsverki og klædd utan með slagþili á veggjum en rennisúð á þaki.
Árið 1891 var kirkjan lögð niður og notuð sem skemma um árabil en hún var flutt úr stað um 1930. Hún hefur verið hluti af húsasafni Þjóðminjasafns Íslands frá árinu 1972. Þá var henni fundinn enn nýr staður og var hún endurvígð árið 1983.
Elsta ritaða heimild um kirkju á Sjávarborg er frá um 1318. Hún var þá helguð Andrési postula.







Leita á vefnum


Póstlisti Þjóðminjasafnsins


 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica