Húsin, kort

Keldur á Rangárvöllum

Keldur á Rangárvöllum

Á Keldum er torfbær af fornri gerð og er hann jafnframt eini stóri torfbærinn sem varðveist hefur á Suðurlandi. Hann hefur verið í vörslu Þjóðminjasafns Íslands frá 1947 og hefur safnið staðið fyrir nokkrum stórum viðgerðum á honum síðan.

Á Keldum er varðveitt einstök heild bæjarhúsa og útihúsa en það eru samtals yfir 20 mannvirki. Sjálfur bærinn er af elstu gerð torfhúsa sem nefnd hefur verið ýmist forna gerð eða Keldnagerð eftir bænum. Þegar komið er inn um bæjardyr er hlóðaeldhús beint af augum, búr á hægri hönd en skáli á þá vinstri. Timburgrind húsanna er með stafverki, prýdd strikum af rómanskri gerð, sérstaklega í skálanum. Á stoðum hans eru m.a. ummerki eftir rúmstæði og á syllu eina er rist ártalið 1641. Skálinn er að öllum líkindum nokkru eldri en hann hefur oft verið endurbyggður í gegnum aldirnar. Skálaþilið er dæmi um fornlega gerð stafverksþils. Í bæjarröðinni eru skemmur, smiðja og hjallur og austan við bæjartraðirnar eru fjós, hesthús og hlöður en á framtúni eru lambhús. Úr skálanum liggja jarðgöng, sem talin eru frá 12.-13. öld og eru líklega undankomuleið á ófriðartímum. Vestan við traðirnar að bænum er myllukofi. Búið var í gamla bænum til ársins 1946.

Opið 15. júní - 16. ágúst, 10 - 17. Aðgangseyrir er kr. 500. Frítt fyrir börn yngri en 18 ára.


Leita á vefnum


Póstlisti Þjóðminjasafnsins


 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica