Húsin, kort
Grænavatn í Mývatnssveit
Grænavatn er talin landnámsjörð, og eru líkur til þess að bærinn hafi staðið á sama stað frá upphafi. Á Grænavatni stendur eitt stærsta frambæjarhús, sem reist var á landinu á sínum tíma. Húsið er úr timbri, reist árið 1913, og kom það í stað framhúsa gamla bæjarins, en aðrir hlutar hans voru áfram notaðir með nýja húsinu. Veggir þeirra standa nú sem háar tóttir að baki frambæjarins.
Nokkur gömul útihús standa enn uppi. Til að segja fyrir um gerð nýja hússins var fenginn norskmenntaður smiður, Páll Kristjánsson (1876-1968), sem verið hafði yfirsmiður Húsavíkurkirkju. Húsið er tvískipt, byggt fyrir tvær fjölskyldur og voru tveir smiðir fengnir til að smíða það eftir teikningum Páls. Smíðaði hvor smiður sinn helming hússins.
Frambærinn er hæð með portbyggðu risi með tveimur kvistum. Grunnflötur jarðhæðar er um 160 m2. Undir húsinu eru tveir aðskildir kjallarar. Húsið ber keim af sveitserstíl, en það er liststíll er kom fram um miðja 19. öld í timburhúsum og einkennist m.a. af miklu skrauti. Búið var í bænum fram yfir miðja síðustu öld, en hin síðari ár hefur húsið einkum verið notað sem geymsla. Húsið hefur verið í vörslu Þjóðminjasafns frá árinu 2000.

