Húsin, kort

Grenjaðarstaður

Grenjaðarstaður í Aðaldal

Í hópi hinna stóru norðlensku torfbæja er gamla prestssetrið á Grenjaðarstað. Staðurinn, sem var lengst af kirkjulén, var meðal tekjuhæstu vildarbrauða landsins og var hann einn af fáum stöðum sem veittur var af erkibiskupi á síðmiðöldum. Í núverandi mynd sinni var bærinn að mestu reistur á síðari hluta 19. aldar og í veggjum hans er aðallega hraungrýti úr nágrenninu.

Hugsanlegt er að kunnur forsmiður á sinni tíð, Árni Hallgrímsson frá Garðsá, sé höfundur frambæjarhúsanna en minna er vitað um bakhúsin. Í nyrsta bæjarhúsinu var starfrækt pósthús á síðari hluta 19. aldar og fram yfir aldamótin 1900. Bærinn þótti reisulegastur allra bæja í héraðinu og allt að þrír tugir manna voru þar í heimili. Búið var í gamla bænum fram til 1949.

Bærinn hefur verið í vörslu Þjóðminjasafnsins frá 1954 og skömmu síðar var hafin á honum umfangsmikil viðgerð, þar sem reynt var að færa hann í upprunalegt horf. Þeirri viðgerð lauk 1958, en síðan hefur alloft verið gert við bæinn, enda torfbæir gerðir úr forgengilegum efnum og þeir láta fljótt á sjá þegar ekki er lengur búið í þeim. Fyrir fáeinum árum var útbúið nýtt þjónustuhús skammt frá gamla bænum og er þar ákjósanleg aðstaða fyrir ferðamenn. Hluti af Byggðasafni Þingeyinga hefur verið í bænum frá árinu 1958.


Leita á vefnum


Póstlisti Þjóðminjasafnsins


 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica