Húsin, kort

Litlibær í Skötufirði

Litlibær í Skötufirði

Skötufjörður gengur suður úr miðju Ísafjarðardjúpi, og er eyjan Vigur úti fyrir fjarðarminninu. Litlibær var reistur árið 1895 af tveimur vinafjölskyldum, sem bjuggu upphaflega sín í hvorum hluta hússinsog var því þá skipt í miðju með þvervegg. Húsið er úr timbri með steinhlöðnum veggjum upp að langhliðum og grasi á þökum.

Túnið er afmarkað af steinhlöðnum garði og mælist það um 3 hektarar. Einstaklega vel hefur verið vandað til allra steinhleðslna.

Íbúarnir hafa lifað af sjávarnytjum ekki síður en landbúnaði. Litlibær er aðeins 3,9m x 7,4m að grunnfleti (utanmál) en portbyggt loft er yfir jarðhæð. Tvö útieldhús voru skammt frá íbúðarhúsinu, og alls munu liðlega 20 manns hafa búið í Litlabæ á tímabili. Frá árinu 1917 bjó aðeins ein fjölskylda á jörðinni. Búið var í Litlabæ fram til 1969.

Tóttir eru margar á jörðinni og skammt í suður frá steinhlöðnum vegg, sem liggur umhverfis túnið, er hringmynduð fjárborg og er hún talin mun eldri en aðrar hleðslur við Litlabæ.

Litlibær hefur verið í vörslu Þjóðminjasafnsins frá árinu 1999. Ráðist var strax í viðamiklar viðgerðir á íbúarhúsinu, en þær hafa legið niðri um sinn. Áformað er að Byggðasafnið Vestfjarða á Ísafirði setji upp sýningu í Litlabæ um búskaparhætti frá fyrri hluta 20. aldar, þegar viðgerðum er lokið.


Leita á vefnum


Póstlisti Þjóðminjasafnsins


 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica