Rannsóknir

Rannsóknir Ljósmyndasafns Íslands

 

Mikill vaxtakippur kom í sýningarhald á ljósmyndum á Íslandi eftir 1970. Nauðsynlegt þótti að fá yfirsýn yfir það. Með leit í úrklippusafni Listasafns Íslands, dagblöðum og safni yfir sýningarskrár var unnin skrá yfir ljósmyndasýningar. Sýningarfjöldinn kom á óvart. Verkefnið er enn í vinnslu. Ívar Brynjólfsson vann að gerð frumskrár sem Inga Lára Baldvinsdóttir hefur unnið frekar að. Hér fyrir neðan er listi yfir nokkrar helstu sýningarnar frá 1970 til dagsins í dag:

 

. Ljósmyndari Mývetninga. Mannlífsmyndir Bárðar Sigurðssonar frá upphafi 20. aldar. Sýning í Myndasal Þjóðminjasafnsins 29.1.2011 - 2.5.2011. Í samvinnu við Minjasafnið á Akureyri og Menningarmiðstöð Þingeyinga. Sýningarhöfundar Inga Lára Baldvinsdóttir og Ívar Brynjólfsson.

. Til gagns og til fegurðar. Sjálfsmyndir í ljósmyndum og klæðnaði á Íslandi 1860-1960. Sýning í Myndasal Þjóðminjasafnsins 2008. Sýningarhöfundur Æsa Sigurjónsdóttir. 

. Þjóðin, landið og lýðveldið. Vigfús Sigurgeirsson ljósmyndari og kvikmyndagerðarmaður. Sýning í Myndasal Þjóðminjasafnsins 27.9.2008 - 31.12.2008. Sýningarhöfundar Inga Lára Baldvinsdóttir og Ívar Brynjólfsson.

. Send í sveit. Ljósmyndir úr fórum Ljósmyndasafns Íslands. Sýning á Veggnum í Þjóðminjasafninu 5.5.2007 - 26.8.2007. Sýningarstjóri Ágústa Kristófersdóttir.

. Á mótum tveggja tíma. Ljósmyndir Guðna Þórðarsonar í Sunnu. Sýning í Myndasal Þjóðminjasafnsins 2.12.2006 - 12.3.2007. Sýningarhöfundar Inga Lára Baldvinsdóttir og Ívar Brynjólfsson.

. Ísland - Iceland. Ljósmyndir Marks Watson úr Íslandsferðum 1937 og 1938. Sýning í Myndasal Þjóðminjasafnsins 16.6. - 24.9.2006. Sýningarhöfundar Inga Lára Baldvinsdóttir og Ívar Brynjólfsson.

. Mannlíf á Eskifirði 1941-1961. Ljósmyndir Halldóru Guðmundsdóttur. Sýning í Myndasal Þjóðminjasafnsins 8.10.2005-30.11.2005. Sýningarstjóri Guðrún Guðmundsdóttir.

. Konungsheimsókn 1907. Ljósmyndir úr ferð Friðriks áttunda til Íslands. Sýning í Myndasal Þjóðminjasafnsins 8.10.2005 -  30.11.2005. Sýningarhöfundur Ívar Brynjólfsson.

. Í Vesturheimi. Ljósmyndir Guðna Þórðarsonar. Sýning í Myndasal Þjóðminjasafnsins 12.3.2005 - 5.6.2005. Sýningarstjóri Guðrún Guðmundsdóttir.

. Íslendingar í Riccione. Myndir úr fórum Manfroni bræðra. Sýning í Myndasal Þjóðminjasafnsins 12.3.2005 - 5.6.2005. Sýningarstjóri Guðrún Guðmundsdóttir.

· Konunglegur hirðljósmyndari.  Rannsókn á starfsferli Ólafs Magnússonar og þætti hans í íslenskri ljósmyndasögu.  Inga Lára Baldvinsdóttir og Ívar Brynjólfsson unnu að rannsókninni. 2003.

· Kristján X á Þingvöllum/Ólafur MagnússonLíf og starf Lofts Guðmundssonar. Inga Lára Baldvinsdóttir, Margrét Elísabet Ólafsdóttir og Erlendur Sveinsson unnu að rannsókninni. 2002

· Ljósmyndir úr Fox-leiðangrinum 1860. Inga Lára Baldvinsdóttir vann að rannsókninni. 2002.

· Skotskífur úr fórum Det Kongelige Kjöbenhavnske Skydeselskab og danske Broderskab. Inga Lára Baldvinsdóttir vann að rannsókninni. 2001.

· Ljósmyndarar á Íslandi 1845-1945.Yfirlitsrit um sögu íslenskrar ljósmyndunar og starfandi ljósmyndara á tímabilinu. Inga Lára Baldvinsdóttir vann að rannsókninni. 2001.

· Ferðalangurinn og rithöfundurinn Throup og Íslandsmyndir hans.  Ívar Brynjólfsson annaðist rannsóknina. 2001.

· Magnús Ólafsson og framlag hans til íslenskrar ljósmyndunar. Inga Lára Baldvinsdóttir vann að rannsókninni. 2000.

· Hans Malmberg og Íslandsmyndir hans. Inga Lára Baldvinsdóttir vann að rannsókninni. 2000.

· Líf og starf Sigríðar Zoëga. Æsa Sigurjónsdóttir vann að rannsókninni. 2000.

· Ljósmyndir teknar af Fransmönnum á Íslandi á 19. öld. Æsa Sigurjónsdóttir vann að rannsókninni. 2000.

· Ljósmyndun á Íslandi 1950-1970. Guðrún Harðardóttir vann að rannsókninni. 1999.

· Rannsókn á gömlum þjóðlífsmyndum úr bókum og blöðum frá fyrri öldum. Halldór J. Jónsson vann í félagi við Árna Björnsson. 1984.

· Skrá yfir mannamyndir Sigurðar Guðmundssonar málara. Rannsókn unnin af Halldóri J. Jónssyni. 1977.


Leita á vefnum


Póstlisti Þjóðminjasafnsins


 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica