Leikir 10 ára barna
Viltu vera mem? Eigum við að koma í ripp rapp rúrí eða sí sí kom pleimó? Hvaða leikir finnast börnum skemmtilegir? Hvaða hlutverki gegna leikföng í leikjum þeirra heima eða í skólanum? Þetta er meðal þeirra spurninga sem reynt verður að svara í verkefninu Samtímasöfnun - leikir barna.
Þjóðminjasafn Íslands, í samstarfi við Byggðasafn Árnesinga, Byggðasafn Reykjaness, Lækningaminjasafn Íslands, Minjasafn Austurlands, Minjasafn Akureyrar, Minjasafn Reykjavíkur og Þjóðfræðistofu stendur fyrir samtímasöfnun um leiki barna í upphafi 21. aldar.
Markmiðið er að safna fróðleik um leiki barna, ásamt leikföngum og ljósmyndum. Söfnunin mun ná til nemenda í nokkrum 5. bekkjum víðsvegar um landið. Samstarf safnanna sem taka þátt gerir þeim kleift að standa að víðtækri söfnun sem veitir einstaka innsýn inn í þennan þátt í lífi barna á okkar tímum.
Hvernig eiga söfn að safna samtímanum? Hvað viljum við velja sem heimildir um okkar samtíma fyrir kynslóðir framtíðar? Í þessu verkefni verður stuðst við aðferð, kennd við samdok, sem þróuð hefur verið í Svíþjóð. Felst það í að velja einhvern þátt samfélagsins og safna heimildum, s.s. þjóðháttum, ljósmyndum og gripum, sem sameiginlega geta gefið heildstæðari mynd en ella.
Niðurstöður verkefnisins verða kynntar með skýrslu og farandsýningu sem sett verður upp hjá öllum söfnunum. Sýningin, sem heitir "Ekki snerta jörðina!" var opnuð í Þjóðminjasafni Íslands 14. apríl 2011.

