Eldri rannsóknir

Mynd á þili - íslenskir myndlistarmenn á 16., 17. og 18. öld

Málverk eftir Jón Hallgrímsson frá 1766, hluti af altaristöflu frá GrenjaðarstaðarkirkjuSvo nefnist grundvallarrit eftir Þóru Kristjánsdóttur, listfræðing og sagnfræðing Þjóðminjasafnsins. Bókin byggir á MA ritgerð hennar í sagnfræði við Háskóla Íslands frá árinu 1999 og var gefin út í samstarfi við JPV-útgáfu árið 2005.

Rannsóknir Þóru beindust sérstaklega að listamönnum á Íslandi á 16., 17. og 18. öld. Það er útbreiddur misskilningur að myndlist hafi ekki verið stunduð á Íslandi fyrr en á síðustu öld. Hér hefur alla tíð verið stunduð myndlist og eru Íslendingar ekkert frábrugðnir öðrum þjóðum hvað það varðar. Sumir vilja meira að segja halda því fram að myndlistin hafi borist til landsins á undan manninum og vísa þá til hinna útskornu öndvegissúlna landnámsmannsins Ingólfs Arnarsonar.

Listasaga 20. aldar á Íslandi er nokkuð skýr og almennt kunn. Færri vita þó að í þjóðminjasafninu er falinn mikill fjársjóður myndlistar. Þar finnast áþreifanlegar heimildir um íslenska listasögu frá upphafi byggðar í landinu fram á miðja 19. öld.

Rannsóknir Þóru leiddu í ljós að mikill hluti listgripa sem varðveist hafa frá þessum tíma eru úr eða hafa geymst í kirkjum. Varðveisluskilyrðin voru yfirleitt betri í kirkjum en í híbýlum manna og þær voru líka lengst af einu opinberu staðirnir á Íslandi sem hýstu myndlist. Kirkjurnar voru einu staðirnir þar sem almenningur gat séð og notið myndlistar í að minnsta kosti 900 ár.

Lesa meira
 

Nokkrar eldri rannsóknir á munum

PredikunarstollÞóra Kristjánsdóttir hefur rannsakað listgripi í eigu safnsins eftir nafngreinda íslenska listamenn allt frá fyrstu öldum Íslandsbyggðar og fram á lok 19. aldar. Voru þessir gripir sýndir í tilefni 140 ára afmælis Þjóðminjasafnsins og 10 ára afmælis Listasafnsins á Akureyri 29. ágúst - 19. október 2003. Sýningarbókin Þjóð í mótun : Ísland og Íslendingar fyrri alda var gefin út í tilefni sýningarinnar. Sýningarstjóri og aðalhöfundur bókar var Þóra Kristjánsdóttir.

Dr. Þórgunnur Snædal sérfræðingur við þjóðminjavarðarembættið í Svíþjóð hefur rannsakað rúnir. Í Árbókum hins íslenska fornleifafélags 2000- 2001 og 1998 er afar gagnleg úttekt og yfirlit yfir gripi með rúnaristum. Fyrri greinin heitir Íslenskar rúnir í norrænu ljósi og hin síðari Rúnaristur á Íslandi.

Dr. Ellen Marie Magerøy hefur rannsakað íslenskan útskurð. Í Árbók hins íslenska fornleifafélags 1999 birtist greinin Útskurður og líkneskjusmíð úr tré.Þar er gott yfirlit um íslenskan útskurð og ítarlegur bókarlisti er aftan við greinina þar sem er að finna mun meira um efnið bæði eftir hana sjálfa og aðra sem um það hafa fjallað bæði fyrr og síðar.

Lesa meira
 

Leita á vefnum


Póstlisti Þjóðminjasafnsins


 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica