Þjónusta Munasafns
Í Munasafni Þjóðminjasafnsins eru veittar alhliða upplýsingar um safnkostinn, sögu þeirra gripa sem eru í eigu safnsins, gerð og meðferð. Sérfræðingar Munasafnsins aðstoða þá sem þess óska: fræðimenn, stúdenta, nema, almenning, einnig bókaútgefendur, söfn og stofnanir sem ýmist stunda rannsóknir, útgáfustarfsemi eða sýningahald.
Safnkosturinn er varðveittur í geymslum safnsins. Aðalaðsetur er í Vesturvör 16-20 í Kópavogi.
Þeir sem óska eftir sérfræðiþjónustu Munasafnsins þurfa í flestum tilfellum að skilgreina beiðni sína, tilgreina muni með safnnúmeri eða gefa vísbendingar um það sem óskað er eftir. Í fyrstu eru upplýsingar veittar úr skrám safnsins sem að stærstum hluta eru orðnar tölvutækar.
Ef óskað er eftir safngripum til skoðunar skal fylla út eyðublað hér.
Heimilt er að lána til sýninga gripi úr Þjóðminjasafni en um það gilda ákveðnar reglur:
REGLUR UM ÚTLÁN SAFNGRIPA ÚR ÞJÓÐMINJASAFNI ÍSLANDS

