Sérhver kynslóð hefur skilið eftir sig minjar í jörðu sem geyma brot af menningarsögu hennar og vitna um lífsbaráttuna á hverjum tíma. Þessar minjar kallast fornleifar og þær geyma oft mikilvægar heimildir sem hvergi er hægt að fá fram með öðrum hætti, en með fornleifarannsókn. Þess vegna er mikilvægt að fornleifum sé ekki spillt af gáleysi t.d. við verklegar framkvæmdir.
Lesa meira