Þjóðháttasafn
Fólk við fiskvinnslu

Þjóðháttasöfnun

Söfnun og rannsóknir þjóðhátta í Þjóðminjasafni Íslands

Síðan um 1960 hefur Þjóðminjasafn Íslands safnað skipulega heimildum um lífshætti í eldri tíð með því að semja spurningaskrár og senda út til fólks. Á aldarafmæli Þjóðminjasafnsins 1963 færði svo menntamálaráðherra safninu sérstaka þjóðháttadeild í afmælisgjöf til að sinna þjóðháttasöfnun.

Árið 2003 var nafninu breytt úr þjóðháttadeild í þjóðháttasafn. Sendar hafa verið út 110 aðalspurningaskrár og 28 aukaspurningablöð. Svör við þeim ásamt öðrum upplýsingum sem berast eru uppistaðan í þjóðháttasafninu (um 15.500 númer). Að auki eru nokkur sérsöfn.


Leita á vefnum


Póstlisti Þjóðminjasafnsins


 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica