Rannsóknir

Skrá 113: Heimatilbúið, viðgert og notað

Spurningaskrá Þjóðháttasafns

Þjóðminjasafn Íslands vinnur nú að söfnun heimilda um  heimatilbúið, viðgert og notað. Tilgangurinn með þessari spurningaskrá er að kanna hvort og í hvaða mæli fólk gerir við búshluti, fatnað eða annað heima hjá sér, hvað það býr til sjálft og hversu mikið það notar hlutina eða endurnýtir.

Nauðsynlegt er að vista skrána áður en henni verður svarað. Leiðbeiningar og nánari upplýsingar eru í spurningaskránni. Með spurningaskránni er leitast við að ná til sem breiðasts hóps í öllum landshlutum, jafnt karla sem kvenna. Þjóðminjasafnið vonast til að með þessu móti verði unnt að varðveita mikilvæga þekkingu sem annars er hætt við að færi forgörðum.       

Þeir sem fremur kjósa að svara ekki stafrænt geta fengið umslög sem setja má ófrímerkt í póst og pappír til að svara á með því að hafa samband við Þjóðminjasafnið í síma 530 2200 eða að senda tölvupóst á netfangið agust@thjodminjasafn.is. Vinsamlegast sendið svörin til: Þjóðminjasafn Íslands, þjóðháttasafn, Suðurgötu 43, 101 Reykjavík.

Á þessu ári eru 50 ár síðan Þjóðminjasafn Íslands hóf söfnun heimilda um þjóðhætti með spurningaskrám. Spurt hefur verið um lífshætti, siði og venjur fyrr á tímum en einnig úr samtímanum. Svör heimildarmanna eru varðveitt í skjalasafni stofnunarinnar og slegin inn í stafrænan gagnagrunn minjasafna, Sarp.

 


Leita á vefnum


Póstlisti Þjóðminjasafnsins


 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica