Spurningalistar

Heimasaumur

Skrá 115: Fatnaður og heimasaumur

Í tengslum við sýninguna TÍZKA - kjólar og korselett hefur verið tekin saman spurningaskrá um fatnað og heimasaum. Einnig er spurt um kjólameistara, klæðskera o.fl. Tilgangurinn með þessari spurningaskrá er að safna upplýsingum um fatnað og saumaskap á heimilum fyrr og nú.

Lesa meira
 

Skrá 114: Framhaldsskólasiðir

Spurt er um eigin reynslu af hinum ýmsu siðum sem tíðkast í framhaldsskólum. Sérstaklega er spurt um busavígslu, dansleiki og félagsstarf, hversdagslíf, ferðalög og dimission.

Lesa meira
 

Skrá 113. Heimatilbúið, viðgert og notað

Tilgangurinn með þessari spurningaskrá er að kanna hvort og í hvaða mæli fólk gerir við búshluti, fatnað eða annað heima hjá sér, hvað það býr til sjálft og hversu mikið það notar hlutina eða endurnýtir.

Lesa meira
 

Skrá 112. Kreppan, hrunið og búsáhaldabyltingin

Spurningaskrá þessi fjallar um bankahrunið haustið 2008, kreppuna sem fylgdi í kjölfarið og svo kallaða Búsáhaldabyltingu.

Þú ert fyrst og fremst beðin(n) um að segja frá þinni eigin reynslu en einstaka sinnum eru spurningarnar þó almenns eðlis. Lestu vandlega í gegnum þær áður en þú byrjar að svara, en ekki er nauðsynlegt að gera það í réttri röð. Frásögnin má því vera í samfelldu máli og algerlega frjáls ef að þér finnst það þægilegra. Þannig má líta á spurningarnar sem eins konar viðmið. Allar upplýsingar eru mikils virði jafnvel þótt svör fáist ekki við öllum atriðum. Ýmis fróðleikur sem ekki er spurt um sérstaklega mætti gjarnan fá að fljóta með.

Flestar spurninganna eru almenns eðlis þótt nokkrar eigi fyrst og fremst við um Reykjavík og nágrenni. Þú svarar þá eingöngu þeim spurningum sem við eiga.

Lesa meira
 

Leita á vefnum


Póstlisti Þjóðminjasafnsins


 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica