Spurningalistar
Skrá 32. Veður og veðurspár
Spurt m.a. um veðurglögga menn og áhrif veðrabreytinga á líkama manna eða drauma. Um tilraunir til að breyta veðri eða afstýra óveðri. Trú á einstökum dögum. Veðurspár varðandi ásigkomulag húsa og híbýla. Spár vegna hegðunar dýra, gróðurs og annarra lífvera. Spár í innyfli sláturdýra. Einkenni lands, lagar og lofts.
Október 1975. 107 svör. 63 tölvusett.
Spurningaskráin
Einstakir kaflar:
Veðrið og maðurinn
Hús og hýbýli
Spár dýra og annarra lífvera
Einkenni lands og lagar
Einkenni loftsins

