Spurningalistar

Skrá 17a. Refagildrur úr grjóti

34 svör. Ekki tölvusett.

Refagildur
Sums staðar þekkjast örnefni eins og Gildruholt og Gildrumelur, og munu þau vera dregin af refagildrum, hlöðnum úr grjóti. – Í því skyni að kanna, hve útbreidd veiði í slíkar gildrur hefur verið hér á landi fyrrum, óskum við eftir upplýsingum um þær.

1. Þekkja heimildarmenn örnefni, sem dregin eru af orðinu gildra? Ef svo er væri æskilegt að fá stuttorða lýsingu á staðháttum.
2. Sjást slíkar gildrur eða leifar af þeim enn á þeim stöðum eða annars staðar?
3. Kunna menn nokkuð að segja frá, hvenær þær hafa verið notaðar eða hverjir það hafa gert?
4. Er nokkuð vitað um veiðiaðferðina fram yfir það, sem ráða má af gildrunum sjálfum?

Vinsamlegast skrifið svörin á sérstök blöð.

Prentvæn útgáfa

Ritaskrá


Leita á vefnum


Póstlisti Þjóðminjasafnsins


 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica