Spurningalistar

Skrá 12a. Doðalækning með hvalkvörn

Spurt er um hvernig hvalkvörn var notuð til að lækna kýr eða aðrar skepnur.
Október 1964.

Aukaspurning: Doðalækning með hvalkvörn.
Sums staðar munu menn hafa reynt að lækna doða í kúm með því að gefa þeim að drekka vatn, sem hvalkvörn hafði verið soðin í, eða vatn (ef til vill einnig mjólk), sem ögn af hvalkvörn hafði verið sorfinn út í. Fróðlegt væri að vita, hversu víða þessi siður er þekktur og fá um hann nákvæmar upplýsingar. Í því sambandi væri æskilegt að heimildarmenn tækju fram eftirfarandi:
Var kúm gefið svarf af hvalkvörn (hvaleyra) í vatni eða mjólk, eða var þeim gefið vartn, sem kvörn hafði verið soðin í? Hversu mikið var sorfið af kvörninni eða hversu lengi var soðið? Var kúnum gefinn drykkurinn fyrir eða eftir burð, og það þótt ekki yrði vart doða? Var kvörnin að öðru leyti meðhöndluð á nokkurn sérstakan hátt? Var þetta ráð haft við kvillum í kúm eða öðrum skepnum? Hvar var kvörnin geymd á milli þess sem hún var notuð? Þótti þetta ráð öruggt meðal við doða? Kunna menn að segja frá ákveðnum dæmum um slíkar lækningar?
Vinsamlegast skrifið svörin við þessu á sérstakt blað eða blöð.

Prentvæn útgáfa


Leita á vefnum


Póstlisti Þjóðminjasafnsins


 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica