Spurningalistar
Skrá 6a. Fuglaveiðar með snörum
Spurt um útfærslur á snörum, úr hvaða efni þær voru og hvernig þær virkuðu við að fanga fugla.
Desember 1961. 33 svör. Raðað með skrá 6.
Desember 1961. 33 svör. Raðað með skrá 6.
Fuglaveiðar með snörum.
Um aldaraðir iðkuðu Íslendingar fuglaveiðar með snörum. Margar gerðir af fuglasnörum hafa verið í notkun til sjávar og sveitar. Lýsið hér fuglasnörum, svo sem föng eru á.
Hvaða efni var notað í snörur?
Hvernig var það unnið?
Hvernig var sjálf snaran gerð?
Við hvað var hún tengd (hlera, skaft, vað t.d.)?
Var snörunni kastað á fuglinn eða um hann vitjað?
Festi fuglinn fætur eða höfuð í snörunni?
Var notað agn? Hverskonar?
Getið um heiti á snörum og einstökum hlutum þeirra.
Teiknið snörur ef tök eru á.
Hvaða sjávarfuglar voru veiddir í snörur?
En landfuglar (rjúpur, kjóar t.d.)?

