Skrá 5a. Aukaspurningar um eyrnahringa, skyrsíur barna og tágakörfur
September 1961. Raðað með skrá 5.
Eyrnahringar.
Frá fornu fari mun það hafa þekkst að menn bæru hringa í eyrum. Hér er óskað eftir fróðleik varðandi þennan sið.
1. Voru eyrnahringar bornir jafnt af körlum sem konum og í hvaða tilgangi?
2. Úr hvaða efni voru eyrnahringar smíðaðir?
3. Hvernig voru þeir festir í eyrun?
4. Báru menn þá til æviloka, tiltekinn tíma eða endrum og eins?
Skyrsíur barna.
Börn gerðu sér að leik að búa til síur úr hrossanál eða öðrum efnum og höfðu við það mismunandi orð og aðferðir. Leitað er fróðleiks um þetta efni, gerð síunnar og meðferð og öll orð sem að því lúta (heiti efnis, síunnar sjálfrar, einstakra hluta hennar o.s.frv.).
Tágakörfur.
Sums staðar á Íslandi hafa verið riðnar eða brugðnar körfur úr víðitágum en í sumum héruðum mun þessi iðja vera óþekkt. Litlar heimildir eru til um þetta efni og því er þess óskað hér að menn skrái það sem þeim er um það kunnugt. Æskilegt er að geta gert sér grein fyrir útbreiðslu þessarar iðju eftir landshlutum og þá ekki síður verklaginu frá því að tágarnar voru teknar og þar til karfan var fullsköpuð, enn fremur hvernig körfurnar voru að gerð og stærð og til hvers einkum notaðar. Kannast menn einnig við að fleira en körfur væri brugðið úr víðitágum, til dæmis skór og hattar?
Öllum orðum og orðasamböndum sem einkum voru notuð á þessu verksviði þarf að halda skilmerkilega til haga.

