Spurningalistar

Skrá 5. Ljós og eldur í þjóðháttum og þjóðtrú

Spurt um, hvenær ljósatími byrjaði og endaði, um ljósfæri, einstaka hluta þeirra, efnivið, gerð o.s.frv., hvenær steinolíulampar komu, efni í lampakveiki, söfnun fífu, hvaða feiti notuð var til ljósmetis og hvernig geymd, hvernig og hvenær kerti voru steypt, hvað notað var í rak. Spurt hvort ljós var borið yfir barnsfylgju, hvort fylgjan var brennd, trú og fyrirboða af ljósum, hvort ljós var látið loga á gamlárskvöld fyrir huldufólk. Spurt um eldstæði, hve mörg voru í eldhúsi, gerð hlóða og undirblástur, skjól á strompi og annan frágang þeirra, hvernig eldur var falinn og tekinn upp, hvernig farið var að ef eldur drapst áður en eldspýtur komu, flutning elds milli bæja. Spurt, hvernig standa átti á sjávarföllum við gerð hlóða, undirblásturs, stromps, eldhúss, hvort fylgjur höfðu áhrif á eld, fyrirboða af eldi, gripi í eldhúsi til að varna bruna, veðurspár af reyk.
September 1961. 71 svar. 59 tölvusett.

Spurningaskráin

Einstakir kaflar:
A. Ljós og ljósatími
B. Ljósfæri
C. Kveikir
D. Ljósmeti
E. Kertasteypa
F. Þjóðtrú
G. Eldur
H. Eldstæði
I. Eldsmatur og fleira
J. Þjóðtrú
Aukablöð

Ritaskrá


Leita á vefnum


Póstlisti Þjóðminjasafnsins


 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica