Spurningalistar

Skrá 4. Andlát og útfararsiðir

Spurt um viðhorf manna til dauðans, álit á því að fyrirfara sér, trú um dauða óskírðra ungbarna, útburði, feigðarboða, náhljóð, hvort prestur þjónustaði menn á banasæng, hverju var trúað þar um, ráð til að stytta dauðastríð, fyrstu viðbrögð eftir andlát, hver veitti nábjargir og hvernig, þvott líks, hvernig lík var klætt og lagt til, hvar lík stóð uppi og hve lengi, hvort vakað var yfir líki, hvaða gestir voru við kistulagningu, hverjum boðið var í erfi og breytingar þar á, fyrirboða við jarðarför, flutning líks til grafar, hvað sungið var og hvenær, hvort látnir menn gerðu vart við sig til að kvarta um eitthvað er aflaga fór með gröfina, erfisdrykkju o.fl.
Febrúar 1961. 65 svör. Tölvusett.

Spurningaskráin

Ritaskrá


Leita á vefnum


Póstlisti Þjóðminjasafnsins


 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica