Spurningalistar

Skrá 1. Slátrun búfjár og sláturverk

Sauðfé. Spurt um hvenær sláturtíð stóð, hvernig dæmt var um vænleik fjár, hvort álitið var betra að slátra á tilteknum dögum, áhöld notuð við slátrun, hvenær farið var að skjóta sláturfé, bönn við að börn eða óléttar konur horfðu á slátrun, spádómar af atburðum við slátrun, vinnubrögð við slátrunina, hvernig flegið var, matargerð úr innmat, hvernig skrokkurinn var hlutaður. Gærurakstur, skinnaverkun, hvað gert var við bein, hrútshorn, spádómar í kindagarnir.
Nautgripir. Spurt um svæfingajárn, svæfingamenn, hvernig stungið var, hvort fara mátti frá nauti hálfflegnu, hvernig tekið var innanúr, hvernig skrokkurinn var hlutaður, hvar seymi var tekið, hvaða hlutar voru notaðir í hraun og hvernig þau voru gerð, spádóma í milta, bjúgnagerð, notkun beina, hárs, slátrun kálfa.
Hross. Hvað var gert við hrossakjöt, hvenær farið að eta það, álit á þeim er það gerðu, hvernig hross voru slegin af, hvenær farið að nota byssu, not hrosshúða, beina, hófa.
Febrúar 1960. 113 svör. Tölvusett.

Spurningaskráin

Einstakir kaflar:
Sauðfé
Nautgripir
Hross

Ritaskrá


Leita á vefnum


Póstlisti Þjóðminjasafnsins


 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica