Skrá 115: Fatnaður og heimasaumur
Í tengslum við sýninguna TÍZKA - kjólar og korselett hefur verið tekin saman spurningaskrá um fatnað og heimasaum. Einnig er spurt um kjólameistara, klæðskera o.fl. Tilgangurinn með þessari spurningaskrá er að safna upplýsingum um fatnað og saumaskap á heimilum fyrr og nú.
Fyrst og fremst er verið að spyrja um þína eigin reynslu, þótt einnig sé áhugavert að fá upplýsingar um það sem þú hefur heyrt hjá öðrum.Sumar spurninganna passa kannski ekki við þína reynslu en þá svarar þú aðeins eftir því sem við á. Ýmis fróðleikur sem tengist efninu en ekki er spurt um sérstaklega mætti gjarnan fá að fljóta með.
Smellið á tengil hér fyrir neðan til að ná í spurningaskrána:
Spurningaskrá nr. 115: Fatnaður og heimasaumur
Athugið að nauðsynlegt er að vista spurningaskrána í viðkomandi tölvu áður en byrjað er að svara.
Vinsamlegast sendið svörin á netfangið agust@thjodminjasafn.is
Með því að svara lítur Þjóðminjasafn Íslands svo á að hlutaðeigandi hafi samþykkt að svör sín tilheyri safninu og að það nýti þau í þágu rannsókna og minjavörslunnar í landinu. Ennfremur að Þjóðminjasafninu sé heimilt að skrá svörin í stafrænan gagnagrunn og gera þau aðgengileg fræðimönnum og öðrum og að svörin séu afrituð í þágu almennings og til rannsókna.
Þjóðminjasafnið hefur safnað heimildum um þjóðhætti með spurningaskrám í meira en hálfa öld. Svörin eru varðveitt í skjalasafni stofnunarinnar og hafa flest þeirra verið slegin inn í rafrænan gagnagrunn.

